|
|
15.01.2008 13:46:53 / -valsarar-
Breytingar eru í gangi hjá félaginu og því fylgir ný síða
krrfj.blog.is
Kíkið á þetta!!!
»
06.01.2008 22:17:24 / -valsarar-
Við lékum okkar síðasta leik í gær í futsalinu á móti Hetti og er skemmst frá því að segja að hann fór ekkert alltof vel, 7-2 tap. Leikmannahópurinn var frekar þunnur eða bara 6 manns, Óli, Einar Örn,Kjartan Bragi, Stefán Ingi, Ævar og Eiki og hafði það sitt að segja þegar leið á leikinn að það hefði vantað 1-2 menn í viðbót. Ævar með bæði mörkin en svo settu Goran Ljubicic og Einar nokkur sjálfsmörk. Þetta futsal mót er samt búið að vera þræl skemmtilegt og hefur stytt veturinn og biðina eftir næsta tímabili, við enduðum í 4.sæti af 5 liðum með 3 stig og alveg klárt mál að tapið gegn Mána (Dýnamó Höfn) eru mestu vonbrigðin. En næsta tímabil er það sem málið snýst um, það er stutt þangað til að skráningarfresturinn í 3.deild rennur út, og kemur því í ljós á allra næstu dögum hvað við gerum í sumar, það er svo annað mál að ýmislegt þarf að breytast hjá félaginu svo við verðum tilbúnir fyrir sumarið og verður það gert ef við förum í deild og nægur tími til þess. En eins og áður sagði ræðst þetta allt á næstu dögum p.s. eftir futsalleikinn ræddum við við Hattara um annan æfingaleik sem verður þá núna í janúar, meira um það síðar.
»
13.12.2007 23:52:09 / -valsarar-
Leikurinn gegn Hötturunum fór illa, ekkert hægt að afsaka það svosum en okkur til tekna má þó telja að við við vorum bara 12, Arnór meiddist í byrjun leiksins og þar með vorum við bara 11 eftir. Hattarar höfðu hins vegar nokkra skiptimenn. Ljósu punktarnir voru þó kannski þeir að við reyndum að spila boltanum í stað okkar hefðbundna kick and run bolta sem hingað til hefur verið aðalsmerki félagsins Leikmannahópurinn var: Óli, Einar Örn, Kjartan Bragi, Kiddi, Arnór, Baldur, Vignir Örn, Palli, Ævar, Lexi, MaggiA og Elvar Ingólfs. MaggiA skoraði markið og Baldur, Einar og Elvar spiluðu allir sinn fyrsta 11manna leik fyrir félagið. Einn Hattaranna var Stefán Ingi einnig þekktur sem Júdas eins eða Goran Ljubicic, í viðtali eftir leik iðraðist Stefán mjög gjörða sinna og ákvað að greiða 2vikna laun sín frá Hetti, eða tvö Lerkitré úr Hallormsstaðarskógi, Pulsu úr Söluskálanum og Goth að eigin vali úr Fellabæ, beint til félagsins og á það á nokkurs vafa eftir að koma félaginu til góða. Við þökkum Stebba fyrir það og vonum að við náum að draga þennan týnda son Reyðarfjarðar aftur heim. En nóg um það. Jólin munum við nýta til að taka sem flesta æfingaleiki og er það í vinnslu, eftir áramótin munum við svo taka annan leik við Hattarana og vona ég við getum veitt þeim einhverja keppni þá. En það sem er næst á dagskrá hjá okkur er turnering í Futsalinu sem verður á Fáskrúðsfirði, þar eigum við leik við Mána og Sindra og er fyrsti leikur hjá okkur kl 12:35
»
10.12.2007 23:13:25 / -valsarar-
Vorum teknir illa í rassgatið á óti Leikni í futsalinu, töpuðum 10-3, fyrir okkur spiluðu Óli, Kjartan Bragi, Marinó, Vignir Örn, Ævar, Jóhann Örn, Einar Örn, Palli, Svanur, Kristján Larsen og Lexi. Jói skoraði 2 og vignir 1. En á morgun kl 19:30 er stórleikur í Höllinni, Valur Rf-Höttur í 11manna leik, mæting fyrir leikmenn er kl 19:00. Það verður að sjálfsögðu gríðarlega gaman að takast á við 2.deildarliðið en jafnframt mjög erfitt. Endilega allir að mæta á þennan stórleik!!!
»
03.12.2007 22:29:13 / -valsarar-
Miðvikudagurinn 5.12 Fáskrúðsfjörður Leiknir F - Valur kl 20:30 Frábært, vertu þar æfing á morgun kl 19:30 magnað bæ
»
27.11.2007 21:16:37 / -valsarar-
Þó annað megi virðast af síðunni er starfsemi félagsins í fullum gangi. Fyrst ber þar að nefna futsalið, sem er nýgerð af innanhússbolta, er að byrja um helgina og það er þá með ekki minni leik en stórslag Leiknis Fáskrúðsfirði og Vals Reyðarfirði sem er einmitt nú á laugardaginn. Ekki þarf að hafa nein orð um það að þetta er einn stærsti leikur seinni tíma á austurlandi og má búast við því að götur Fjarðabyggðar verði tómar meðan leikurinn fer fram í íþróttahúsi Fáskrúðsfjarðar. Líklegur leikmannahópur Vals: Ólafur Kristinn, Kjartan Bragi, Marinó Óli, Vignir Örn, Stefán Ingi, Ævar, Einar Örn, Páll og Símon Ben. Alla leikjaniðurröðina má svo sjá hér Leikir | # | Leikdagur | kl | Leikur | Völlur | #Ú | | | | | 1 | lau. 01. des. 07 | 16:00 | Höttur - Umf Borgarfj. | Egilsstaðir | | Dómarar | | | | 2 | lau. 01. des. 07 | 16:00 | Leiknir F. - Valur Reyðarf. | Fáskrúðsfjörður | | Dómarar | | | | 3 | lau. 01. des. 07 | 16:00 | Máni - Sindri | Hornafjörður | | Dómarar | | | | 4 | lau. 15. des. 07 | 12:00 | Höttur - Leiknir F. | Egilsstaðir | | | | | | 5 | lau. 15. des. 07 | 12:30 | Valur Reyðarf. - Máni | Egilsstaðir | | | | | | 6 | lau. 15. des. 07 | 13:00 | Umf Borgarfj. - Sindri | Egilsstaðir | | | | | | 7 | lau. 15. des. 07 | 13:30 | Máni - Höttur | Egilsstaðir | | | | | | 8 | lau. 15. des. 07 | 14:00 | Sindri - Valur Reyðarf. | Egilsstaðir | | | | | | 9 | lau. 15. des. 07 | 14:30 | Leiknir F. - Umf Borgarfj. | Egilsstaðir | | | | | | 10 | lau. 05. jan. 08 | 12:00 | Höttur - Sindri | Fáskrúðsfjörður | | | | | | 11 | lau. 05. jan. 08 | 12:30 | Leiknir F. - Máni | Fáskrúðsfjörður | | | | | | 12 | lau. 05. jan. 08 | 13:00 | Umf Borgarfj. - Valur Reyðarf. | Fáskrúðsfjörður | | | | | | 13 | lau. 05. jan. 08 | 13:30 | Sindri - Leiknir F. | Fáskrúðsfjörður | | | | | | 14 | lau. 05. jan. 08 | 14:00 | Máni - Umf Borgarfj. | Fáskrúðsfjörður | | | | | | 15 | lau. 05. jan. 08 | 14:30 | Valur Reyðarf. - Höttur | Fáskrúðsfjörður | | | | |
En það er fleiri í gangi en futsalið og stjórn KR vinnur hörðum höndum að koma liðinu í 3.deild á næsta ári, sennilega undir merkjum Vals, ef svo færi hyllir jafnvel í Austfjarðariðil í 3.deildinni sem hefur ekki gerst síðan 2004. Það sem meira er að það myndi þýða minni ferðalög en í utandeildinni síðasta sumar svo undarlegt sem það nú er. Það er alveg ljóst að þó að þátttaka í 3.deild kalli á mikla vinnu og erfiðari leiki þá er það líka mikil skemmtun, og meiri skemmtun en í utandeild enda fleiri leikir, en þetta kemur allt í ljós á næstunni!
»
21.11.2007 10:41:17 / Lexi
HANN Á AFMÆLI Í DAG, HANN Á AFMÆLI Í DAG, HANN Á AFMÆLI HANN ÓLI HANN Á AFMÆLI Í DAG!!!
hann óli okkar rauði er orðinn 20 ára!.. bara elli smellur greyið, hehe neinei ég seigi svona en já... ég hef voðalega lítið sem ég get sagt um þennan Dreng annað en bara til hamingju með þessi 20 ár og bara njóttu dagsins;** TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ;***
»
30.10.2007 20:51:42 / -valsarar-
Áður en þess síða hverfur endilega á nýjar ótroðnarslóðir í æðri veröld langaði mig að skjóta að nokkrum þríförum sem hin ágæta vefsíða google.com var svo vinsamleg að benda félaginu á: #1 Fyrstu þrífararnir saman standa af stórleikurunum Alexandri Frey og United helvítinu Ronaldo og Simon LeBon stórsöngvara! 

#2 Næstir koma hinir hárprúðu Eiki Hauks, Óli súkkulaðisnúður og Kyle Broflovski Daywalker 


#3 Næstu þrífarar eru sláandi líkir, Konungur Frumskógarins, Konungur Dalanna og Kristján X síðasti Konungur Íslands. 


Þá er það komið og skora ég á Ólaf Kristinn Kristínarson að koma með næstu þrjá þrífara
Af öðru er það að frétta að 4 önnur austanlið skráðu sig í futsalmótið í mfl kk og liggur riðlaskiptingin fyrir líklega í lok vikunnar! Svo er einnig gaman að geta þess að mfl Vals (KR) vann 2.fl KFF (KR) 3-2 í æfingaleik um daginn fyrir meistaraflokk KR skoruðu Biggi 2 og Halli Toll en fyrir 2.flokk KR skoruðu Andri Hjörvar (KFF maður) og Stefán Ingi, gaman að því
»
11.10.2007 14:04:47 / -valsarar-
Við erum búnir að skrá liðið í Íslandsmótið innanhúss sem verður með breyttu sniði í ár. Líkt og í fyrra spilum við sem Valur Reyðarfirði þar sem KFF tekur ekki þátt. Húsið hér er hins vegar of lítið þannig við munum spila heimaleikina okkar á Fáskrúðsfirði. Keppnisfyrirkomulaginu verður sennilega breytt þannig í stað hraðmóts verður bara einn leikur leikinn í einu, leiktíminn í kringum 2x35mín. Reglunum veðrur líka breytt í svokallaðar Futsal reglur, förum betur ofaní þær á æfingu. Félagaskipti þurfum við svo allir að hafa nema Palli og þeir sem enn eru skráðir í Val. Af e-m ástæðum sem ég skil ekki er lokað fyrir félagaskipti fram í Febrúar og á þeim tíma aðeins hægt að hafa tímabundin félagaskipti (lán) en við reddum því bara. Mótið hefst svo í kringum 15.nóv... og eitt að lokum, við erum búnir að kaupa þrjá geðvieka keppnisbolta fyrir næsta tímabil á fínum prí í Englandi en boltarnir eru einmitt úrvalsdeildarboltarnir þar í landi, já gaman að því.. En endilega meldið ykkur varðandi þetta innanhúss mót!!!!!!!
»
01.10.2007 22:14:10 / -valsarar-
Daginn ágætu samferðamenn og konur mig langar til þess að kynna ykkur fyrir nýjum leikmanni KR sem á framtíðina fyrir sér... Nei við erum ekki að tala um Kjartan Braga þar sem hann var hjá félaginu fyrir. Nafn Ian Rush hefur einnig komið fram í slúðri Fótbolta.net ásamt the sun. Einnig heyrðist í sumar að hinn sífellt spræki leikmaður Juusi Jaaskelainen sé að spá í að standa milli stanganna hjá KR næsta sumar... En nú að aðalmanninum, því KR hefur fest kaup á hinum unga Eiríki Inga Jónssyni,, námsmanni og Byko erfingja með meiru. Eiríkur hefur sýnt mikla takta fyrir liðið, og hefur unnið sér inn stöðu sem vinstri kanntmaður eftir að hafa sigrað lexa í júdó bardaga um stöðuna. Einnig sýndi Eiríkur mikinn karakter í dýfum þar sem sérstök dýfu æfing fór fram á Reyðarfirði í kvöld. Hefur Lexusinn nú fengið harða samkeppni á sviði dýfu og leikaraskapar. Því miður fékst ekki mynd af Eiríki þar sem umboðsmaður hans bað um að stefgjöld yrðu greidd af myndinnni. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi háttur er hafður á en mörgum er enn í fersku minni þegar Konráð Þór Vilhjálmsson neytaði að koma fram á forsíðu Séð og Heyrt eftir að hann átt í heitu ástarsambandi við lukkudýr KR sem hvu vera hinn víðfrægi Dalabroddgöltur Stefán. Eina mynd þurfum við þó ekki að borga stefgjöld fyrir og er sú mynd tekin á góðri stundu að leik loknum.  Eins og sjá má er oft glatt á hjalla þegar leikmenn KR koma saman.. En nóg að sinni KR fréttum er lokið í kvöld Lifi KR Stjórnin
»
22.09.2007 19:24:43 / -valsarar-
Jæja erum búnir að landa tímum fyrir okkur í Höllinni í vetur. Tímarnir eru undur merkjum Meistara og 2. flokks Vals og Austra og verða í vetur á sunnudögum kl 17:00, gott mál það!!! Sunnudagar kl 17:00 Þá er bara að fjölmenna, það kostar ekkert í þessa tíma sem er bara glæsilegt og allir að sjálfsögðu velkomnir. Munið tímasetninguna og mætið tímanlega núna strax á sunnudaginn!!!!!!!!
»
09.09.2007 20:33:39 / -valsarar-
Það hafa verið miklar umræður inná www.blog.central.is/mvbikarinn um Hattarliðið og yfirburði þeirra í sumar, sem margir segja að hafi skemmt deildina. Nú veit ég ekki um það en eitt veit ég þó að mfl mennirnir drógu algjörlega vagninn fyrir b-liðið. Til að mynda voru 4 af 5 mörkum Hattar gegn okkur skoruð af mönnum sem reglulega spila fyrir mfl. Markið sem stendur eftir kom úr víti. Höttur er lið sem kemur frá stórum bæ og eiga nóg af mannskap. Samt sem áður taka þeir þá stefnu að fylla liðið af útlendingum og aðkomumönnum. Þessum mönnum borga þeir beint eða óbeint og redda þeim vinnu og húsnæði. Suma þessarra manna eru þeir svo bara að nota í utandeildinni! Nóg þykir mörgum um þegar lið í 3.deildinni fylla lið sín af útlendingum en þegar lið eru farin að flytja inn leikmenn og jafnvel borga þeim fyrir að spila í utandeild er þetta orðið algjört kjaftæði. Að kaupa sér árangur í UTANdeild er tómt rugl. Af gamni mínu skellti ég inn stöðunni ef lið Hattar b hefði ekki verið með(ekki misskilja mig þannig mér finnist Höttur ekki eiga að vera með, niðurstaðan verðu bara góð ef þetta er svona ) | | L | S | J | T | SM | FMÁ | Stig | | KR/LeiknirB | 7 | 5 | 1 | 1 | 35 | 7 | 16 | | UMFB | 7 | 5 | 0 | 2 | 22 | 15 | 15 | | BN'96 | 7 | 5 | 0 | 2 | 25 | 15 | 15 | | Dýnamó | 7 | 4 | 1 | 2 | 30 | 17 | 13 | | 06. Apríl. | 7 | 4 | 1 | 2 | 24 | 13 | 13 | | Einherji | 7 | 2 | 1 | 4 | 24 | 24 | 7 | | Þristur | 7 | 1 | 0 | 6 | 7 | 24 | 3 | | KF | 7 | 0 | 0 | 6 | 12 | 51 | 0 |
»
30.08.2007 13:35:14 / -valsarar-
Það er orðið langt síðan e-r lét heyra í sér á þessari síðu en það breytir því þó ekki að ýmislegt hefur gerst í millitíðinni Fyrst ber að telja Þristarleikinn sem spilaður var á Eiðum 20.Ágúst sl en hann fór 4-1 fyrir okkur. Við mættum 14 til leiks nánast helmingi fleiri en Heimamenn í Þristinum sem voru einungis 8 þegar Gunnar Gunnarsson flautaði leikinn á. Byrjunarlið okkar Ævar (m) Leif K Svanur Konráð (þ ) Stefán I Arnór Símon Vignir (c) Palli Jói Maggi Óli, Gummi Rúnar, Arnar Junior urðu því að hefja leik með Þristurum, og kláraði Ól leikinn með þeim en eftir uþb 15 mín komu tveir Þristarar í stað Gumma og junior Auk þess að redda Þristurum leikmönnum redduðum við líka línuvörðum og voru þeir ekki af verri endanum en Kjartan Bragi og Alexander Freyr tóku verkið að sér enda mikil góðmenni. Lítið er þó að segja frá leiknum sjálfum en hann var sennilega einn af þeim slakari sem við höfum spilað. Þristarmenn pökkuðu í vörn og gekk okkur illa að brjóta múrinn á bak aftur. Staðan var 0-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik tók Arnór til sinna mála og tók tvo þrumufleyga utan af velli sem báðir enduðu framhjá annars ágætum markmanni Þristarins. Eftir það tók við mikið einbeitingarleysi hjá okkur og skoruðu Þristarar beint úr aukaspyrnu þega við vorum enna að stilla upp varnarveggnum, virkilega klaufalegt! Skömmu síðar skoraði Konni svo úr víti, og fór í kjölfarið í mark fyrir Ævar sem fór í sóknina og skoraði, 4-1 sigur staðreynd!
Tímabilinu er nú lokið, og fór það hreint ekki eins og við ætluðum, en er þó mikil framför frá Súlunni 2006. Lokastaðan
| L | S | J | T | SM | FMÁ | Stig | | Höttur | 8 | 7 | 0 | 1 | 72 | 10 | 21 | | UMFB | 8 | 6 | 0 | 2 | 25 | 17 | 18 | | KR/LeiknirB | 8 | 5 | 1 | 2 | 37 | 12 | 16 | | BN'96 | 8 | 5 | 0 | 3 | 26 | 21 | 15 | | Dýnamó | 8 | 4 | 1 | 3 | 30 | 21 | 13 | | 06. apríl | 8
| 4
| 1 | 3 | 24 | 25 | 13 | | Einherji | 8 | 2 | 1 | 5 | 27 | 30 | 7 | | Þristur | 8 | 1 | 0 | 7 | 8 | 39 | 3 | | KF | 8
| 0 | 0 | 7 | 12 | 73 | 0 |
Það sem er sárast er að enda neðar en UMFB sem við kjöldrógum 4-0 í Höllinni fyrr í sumar. Það sem skilur á milli okkar og liðanna fyrir ofan okkur er sú staðreynd að hvorugt þeirra liða þurfti að leggja í langt ferðalag í sumar, á meðan við fórum til Hafnar, Vopnafjarðar og Djúpavogar. Staðan hefði getað litið öðruvísi út ef smáveldin af héraðinu hefðu þurft að manna lið þangað. Það þýðir þó ekkert að svekkja sig á því enda klúðruðum við okkar málum með því að tapa fyrir BN hér heima. Nú þarf að fara að huga að framtíð félagsins. Vilja menn gera alvöru úr þessu og fara í 3.deildina eða halda áfram í Malarvinnslubikarnum. Þetta er stór spurning sem þarf að velta fyrir sér. Mín persónulega skoðun er sú að við ættum að taka skrefið upp í 3.deildina. Það yrði vissulega erfitt en þó e-ð sem við eigum að geta höndlað. Ef af því yrði myndum við vera í D-riðli en þó er alls ekki ljóst hvaða önnur lið yrðu í honum. Fer það eftir því hvort Huginn eða Leiknir fara upp, Sindri fellur og hvort fleiri utandeildarlið myndu einnig skrá sig. Veit ég til að mynda að Dynamo menn hafa verið að velta þessu fyrir sér. Ef Austfjarðaliðin yrðu hins vegar fá myndum við lenda í Norðausturriðli með liðum eins og Hömrunum, Vinum o.fl. Slíkt myndi vissulega útheimta mikil ferðalög. Allt þetta eru auðvitað getgátur en þetta er e-ð sem við eigum að velta fyrir okkur og ígrunda vel áður en e-ð er ákveðið.
En að loknu tímabili er venjan að halda lokahóf og vona ég að við getum látið verða af því og haft þar kosningu um leikmann ársins. Starfsemi KR fer nú í smá hlé en vonandi munum við hefja eigin æfingar sem fyrst
»
19.08.2007 18:15:34 / -valsarar-
Leikurinn við Þristinn frestast!!! Verður á morgun kl 20:00 á Eiðum Mæting ekki seinna en 7 á Egilsstaði Meldið ykkur í síma 847 0711 Klárum þetta svo með trompi þó við eigum enga titilmöguleika lengur!!! Lifi KR!
»
16.08.2007 18:01:12 / Lexi
Jæja margt er hægt að segja um þennan leik hjá okkur í gær og
ætla ég að koma með eitthvað af því núna.. við vorum á köflum að
spila betri og skemmtilegri fótbolta en vorum bara ekki að halda
boltanum niðri og þeir voru mun stærri og Sterkari en við í loftinu
og við einfaldlega nýttum ekki færin okkar eins og Kjartan Bragi
sagði! en svo fengum við á okkur vítaspyrnu og markmaðurinn okkar í
seinni hálfleik varði hana en missti boltan alltof langt frá sér og
var því fylgt eftir með marki frá BN mönnum en annas verð ég bara
að segja að þetta var bara mjög skemmtilegur leikur en get ekki
sagt að hann hafi verið Clean! en annas vill ég líka bara þakka BN
mönnum fyrir góðan leik og óska þeim góðs gengis á næstu árum!
Byrjunar liðið er svona!
Halli
Konni
Kjartan Sigurvinn
Stebbi
Vignir Brimir
Palli
Bjössi Arnór
Ævar
Síðan á bekknum sátu Símon og Lexi en þeir fengu að
koma við sögu í leiknum Leikurinn endaði 3-2 Bn mönnum í vil og
markaskorarar okkar voru Brimir og Vignir minnir mig.. þið
Leiðréttið mig bara ef það er vitlaust
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|